Aðferðafræði.
Hver síða Metils notar eigin aðferðir og heimildir. Hér er yfirlit yfir hverja — hvaðan gögnin koma, hvernig þau eru reiknuð, og hvar mælingunum eru sett mörk.
Síðurnar
Fylgisvakt
Tölfræðileg samantekt á niðurstöðum kannana — fylgi með óvissubili, byggt á sögulegum samanburði kannana við kosningaúrslit.
Fjármál sveitarfélaga
Tekjur, gjöld, skuldir og þjónusta sveitarfélaga frá 2002. CPI-leiðrétt í föstu verðlagi 2023; viðmið Eftirlitsnefndar úr reglugerð 502/2012.
Leikskólapláss
Eftir sveitarfélagi, aldri og ári. Desember-talning Hagstofu deilt á janúar-árgang ársins eftir — réttur mælikvarði þrátt fyrir tímabilið milli mælinga.
Húsnæði
Fullbúnar íbúðir (matsstig 7-8 í fasteignaskrá HMS) á móti 18 ára og eldri samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofu.
Fasteignamat og fasteignagjöld
Álagning úr Árbók sveitarfélaga 2025 og 2026 með fasteignamati HMS — fasteignaskattur, fráveitu- og vatnsgjald, blandað á % af mati, kr/m² og föst gjöld eftir lið og sveitarfélagi.
Launakostnaður Reykjavíkurborgar
Launakostnaður úr uppgjörsgögnum borgarinnar, flokkaður á fimm stigum reikningsstigveldis. Leitarorð eru borin saman við öll stigin og fjárhæðir birtar á föstu verðlagi.
Íþróttaspár
Tvívíð Poisson-dreifing á markaskori með sóknar- og varnarstyrk hvers liðs. Styrkur breytist yfir tíma samkvæmt slembigöngu.
Jöfnun atkvæðavægis
Þingsæti endurreiknuð eftir gildandi lögum og tillögum starfshóps dómsmálaráðherra. Kosningaúrslit og kjörskrá frá Hagstofu Íslands.
Kosningar 2026
Sveifla í fylgi flokka milli sveitarstjórnarkosninga 2022 og 2026, eftir sveitarfélagi. Talning frá RÚV, sveitarfélagamörk frá Landmælingum Íslands.
Reykjavíkurspá 2026
Spá um borgarstjórnarkosningar 16. maí 2026: fylgi, sæti og mögulegir meirihlutar með óvissubilum.
HM 2026
Tvívítt Poisson-líkan metið á landsleikjum frá 2022. Styrkur hvers liðs þróast yfir tíma, svo nýlegir leikir vega þyngst.