Efnahagur · VerðbólgaGögn uppfærð 29. október 2026metill.is / verðbólga
Verðbólga · október 2026
Verðbólga.
Verðlag hækkar meira í sumum mánuðum en öðrum, til dæmis vegna útsala. Hér eru slíkar
árstíðasveiflur teknar út svo að sjá megi hve hratt verðlag hækkar. Spá um næstu mælingu fylgir.
Árstíðaleiðrétt · 3 mán.
6,2%
Árstíðaleiðrétt · 12 mán.
5,9%
Spá · ársverðbólga í nóvember
6,5%
Ársverðbólga
5,9%
Árstíðaleiðrétt verðbólga
október 2026 · á ársgrundvelli · 90% óvissubil
Síðasti mánuður
5,2%
2,3–8,2%
Síðustu 3 mánuðir
6,2%
4,5–7,9%
Síðustu 6 mánuðir
5,7%
4,8–6,8%
Síðustu 12 mánuðir
5,9%
5,7–6,1%
Undirliggjandi taktur
5,9%
3,2–8,7%
Tölurnar sýna hve hratt verðlag hefur hækkað á hverju tímabili, umreiknað á ársgrundvelli, eftir að
árstíðasveiflur hafa verið teknar út. Tilfallandi breytingar eru enn í þeim og því sveiflast talan
fyrir síðasta mánuð mikið. Undirliggjandi taktur er mat líkansins á verðbólgunni þegar tilfallandi
breytingar hafa líka verið síaðar burt. Ársverðbólga Hagstofunnar í október var 5,9%.
Sé húsnæði undanskilið var árstíðaleiðrétt verðbólga 6,3% síðustu 3 mánuði og
5,9% síðustu 12 mánuði. Ársverðbólga Hagstofunnar án húsnæðis var 5,9%.
Spá fyrir nóvember
Hagstofan birtir mælinguna 26. nóvember 2026
+0,11%
Spá um breytingu vísitölu neysluverðs frá október til nóvember.
90% óvissubil er frá −0,55% til +0,77%.
Gangi spáin eftir verður ársverðbólga 6,5% í nóvember
(óvissubil 5,8–7,2%).
Línan er mat líkansins í dag á taktinum allt tímabilið. Punktarnir sýna taktinn eins og hann var metinn í hverjum
mánuði, aðeins út frá gögnum sem þá lágu fyrir. Matið á síðustu mánuðum breytist þegar ný gögn bætast við.
Framlag liða
Deila: Deila þessari sýn
Afritaðu kóðann hér að neðan og límdu í
HTML-blokk í greininni þinni.
Kóði fyrir grein (iframe)
Innifelur stutt skriftarstykki sem stillir hæðina sjálfkrafa
— ef CMS-ið þitt leyfir <script>. Annars
passar fasti height.
Hve mörg prósentustig hver flokkur leggur til ársverðbólgunnar. Samanlagt gefa þeir ársverðbólgu Hagstofunnar, að námundun frátalinni.
Hleð myndriti…
Í janúar 2026 voru bensín- og olíugjald felld niður og kílómetragjald lagt á allar bifreiðar. Eldsneyti lækkaði
því í verði en veggjöld hækkuðu. Eldsneyti telst til innfluttra vara og veggjöld til opinberrar þjónustu. Hvort
tveggja hefur áhrif á ársverðbólgu mánaðanna janúar til desember 2026.
Frá janúar 2026 er byggt á nýrri flokkun Hagstofunnar. Í henni er opinber þjónusta þrengri en áður og sumar
vörur eru í blönduðum flokki. Hér teljast matur og drykkir úr honum til innlendra vara og aðrar vörur til
innfluttra. Tölur fyrir 12 mánaða tímabil sem ná yfir áramótin 2025–2026 blanda því saman gömlu og nýju
flokkuninni.
Árstíðamynstrið
Deila: Deila þessari sýn
Afritaðu kóðann hér að neðan og límdu í
HTML-blokk í greininni þinni.
Kóði fyrir grein (iframe)
Innifelur stutt skriftarstykki sem stillir hæðina sjálfkrafa
— ef CMS-ið þitt leyfir <script>. Annars
passar fasti height.