Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Söfn · Reykjavíkurspá 2026 Gögn uppfærð 16. maí 2026 metill.is / reykjavikurspa-2026
Lokaspá · Borgarstjórnarkosningar 16. maí 2026

Reykjavíkurspá 2026

Kosið var 16. maí 2026. Lokaspáin er varðveitt óbreytt og borin saman við úrslitin.

Spá og úrslit

Lokaspá · 90% óvissubil

Fylgi 8 af 10 listum var innan 90% óvissubils spárinnar og meðalfrávikið var 0,8 prósentustig. D + S, líklegasti meirihlutinn samkvæmt spánni, fékk 14 sæti. Miðgildi spárinnar var 14 sæti. Öll úrslit sveitarstjórnarkosninganna eru á síðunni Kosningar 2026.

Listi Spá Úrslit Frávik Spáð sæti Sæti
D Sjálfstæðisflokkur 33,3%30,2–36,6% 32,9% −0,4 98–10 9
S Samfylkingin 18,8%16,9–20,8% 18,3% −0,5 54–5 5
A Vinstrið 11,3%9,2–13,4% 9,5% −1,7 32–3 2
C Viðreisn 10,1%8,8–11,5% 10,7% +0,6 22–3 2
M Miðflokkur 9,3%8,0–10,7% 11,4%utan bils +2,1 22–3 3
B Framsóknarflokkur 5,8%4,5–7,5% 6,9% +1,1 11–2 1
J Sósíalistaflokkur 4,3%3,3–5,7% 4,1% −0,2 10–1 1
F Flokkur fólksins 3,2%2,6–3,8% 3,3% +0,2 00–1 0
P Píratar 3,0%2,3–3,7% 1,9%utan bils −1,0 00–1 0
Annað 0,7%0,4–1,2% 1,0% +0,3 0 0

Spáð fylgi

Óvissubil 50 / 80 / 90 / 95%
Hleð gögn …

Mögulegir meirihlutar

Líkur sem lokaspáin gaf samsetningum flokka á 12+ sætum, meirihluta í 23 sæta borgarstjórn. Veldu flokka til að skoða aðrar samsetningar.

Líklegustu samsetningar í spánni
Líkur á 12+ sætum
Spáður sætafjöldi
Spáð fylgi
90% bil

Líklegasti sætafjöldi

Sameiginlegt fylgi

Þróun fylgis

Janúar 2025 – maí 2026 · 50% og 90% bil

Um líkanið

Líkanið mat raunfylgi flokkanna út frá fylgiskönnunum og leiðrétti fyrir kerfisbundnum mun milli könnunaraðila — hver aðili hefur sinn hóp þátttakenda og eigin aðferðafræði, og því geta sumir flokkar mælst aðeins hærri eða lægri eftir fyrirtækjum. Til þess notaði líkanið kannanir og raunúrslit kosninganna 2018 og 2022. D'Hondt-aðferð breytti svo hverri fylgissviðsmynd í úthlutun á 23 borgarstjórnarsætum.

Niðurstaðan er ekki ein tala heldur líkindadreifing yfir mögulegar útkomur. 90% óvissubil þýðir að í 90 af 100 sviðsmyndum líkansins endar fylgið innan þess bils — fimm sinnum fyrir neðan og fimm sinnum fyrir ofan. Þegar punktur í þróunargrafinu er fyrir ofan línuna er fylgi flokks ofmetið í þeirri könnun miðað við matið okkar; fyrir neðan línuna er það vanmetið.