Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Söfn · HM 2026 Gögn uppfærð 2026-07-19 metill.is / hm 2026
Heimsmeistaramótið 2026 · Bandaríkin · Kanada · Mexíkó

HM 2026

Íþróttalíkan Metils mat sóknar- og varnarstyrk hvers landsliðs og spáði fyrir um úrslit mótsins.

Heimsmeistari Spánn
Úrslitaleikur 1–0 Spánn – Argentína
Umfang 48 lið í 12 riðlum
Lokaspá 19. júlí 2026 úr 3.000 útdráttum
01 Sigurspáin & frammistaða

Sigurspáin — lokastaða

lokastaða

Líkur hvers liðs á titlinum í síðustu spá líkansins, eftir úrslitaleikinn.

Spánn er heimsmeistari 2026.

Mótinu er lokið — varðveitt yfirlit

Hvernig gekk spáin?

Riðlakeppnin · 72 leikir · spá vs úrslit

Hér mælum við hvort spáin standist: hverju líkanið spáði fyrir leik og hvað gerðist. Fyrst — væntur fjöldi úrslita (summa líkinda) borinn saman við raunfjöldann.

Kvörðun spánna

Öll líkindi sem líkanið gaf (heima · jafntefli · úti) flokkuð saman: spáðar líkur (lárétt) á móti raunverulegri tíðni (lóðrétt). Skyggða bandið sýnir hvar punktur gæti lent fyrir tilviljun eina. Þegar Metill segir 70%, rætist það í um 70% tilfella.

Spáð um markatölur

Riðlakeppnin · 72 leikir · spá vs úrslit

Spáð líkindadreifing markatalna borin saman við raunveruleg úrslit: hver reitur sýnir hversu líklega líkanið taldi hverja útkomu (dekkri = líklegri) og rauða strikið er það sem gerðist. Lendi rauða strikið þar sem reiturinn er dökkur var spáin góð.

spáð líkindadreifing raunveruleg úrslit
02 Útsláttarkeppnin

Úrslitaleikurinn

lokaniðurstaða

Leið beggja liða í úrslitaleikinn sést í útsláttartrénu hér að neðan.

Útsláttarkeppnin

32-liða úrslit → úrslitaleikur

Útsláttartréð eins og það endaði — lokaniðurstaða hvers leiks frá 32-liða úrslitum að úrslitaleik. Uppsafnaðar líkur á að ná hverri umferð eru í Heildaryfirlitinu hér að neðan.

Mótinu er lokið — útsláttartréð sýnir lokaniðurstöðu hvers leiks.

1A = sigurvegari A-riðils 2B = annað sæti B-riðils „3. sæti“ = eitt af bestu liðum í þriðja sæti

Ferðalag liðs

Veldu lið og fylgdu líklegustu leið þess gegnum útsláttarkeppnina — hvar það endar í riðlinum, hverja það mætir og líkur á að ná hverri umferð. Stilltu á 1. eða 2. sæti til að sjá hvernig lokastaðan í riðlinum breytir leiðinni.

—
Riðlakeppni
Kemst áfram
—
Útsláttarleið — líkur á að ná umferð og líklegasti mótherji

Tölurnar eru líkur á að ná hverri umferð. Líklegasti mótherji er reiknaður úr líkaninu; fyrir valið sæti er liðið fest í þá rás og leiðin spáð fram. Lið getur líka komist áfram sem eitt af bestu liðum í 3. sæti — sú leið er talin með í „Eins og spáin“ en er ekki valin sérstaklega, því sætið í útsláttartrénu er óvíst. Uppsafnaðar líkur allra liða eru í Heildaryfirlitinu hér að neðan.

Einvígi

Veldu tvö lið og sjáðu hvort liðið komst lengra í mótinu og hvort þau mættust í útsláttarkeppninni. Síðasta spáin var reiknuð eftir úrslitaleikinn, svo líkurnar sýna niðurstöðuna.

„Ég skal lofa þér því ef að Portúgal fer lengra en Argentína, þá skal ég láta þig hafa númerið hans“— Eiður Smári Guðjohnsen við Albert Brynjar Ingason um símanúmerið hans Messi

Argentína fór lengra og lék til úrslita, en Portúgal féll úr leik í 16-liða úrslitum.

Líkurnar eru reiknaðar sérstaklega. Fyrir hvern af 3.000 útdráttum úr líkaninu er útsláttarkeppnin leikin 400 sinnum og fylgst með hve langt hvort lið kemst og hvort þau mætast. Tölurnar geta því vikið 1–2 prósentustig frá sigurspánni. „Komist lengra“ þýðir strangt til tekið lengra: jafntefli (bæði slegin út í sömu umferð) telst ekki með. Mætist liðin er það talið frá 16-liða úrslitum og áfram.

Heildaryfirlit

öll 48 lið · líkur á að ná hverri umferð

Líkur allra 48 liða á að komast upp úr riðlinum og áfram í gegnum hverja umferð (uppsafnað). Dekkri reitur = hærri líkur; prósenta sýnd þegar hún nær 10%.

03 Riðlakeppnin

Riðlakeppnin

12 riðlar · lokastaða

Veldu riðil. Vinstri hluti töflunnar sýnir stöðuna eins og hún er — leikir, stig, mörk og markamunur — og hægri hlutinn spá líkansins: spáð stig og markamunur, líkur á hverju lokasæti (Lokastaða) og líkur á að komast upp úr riðlinum (Áfr.).

Hleð gögnum…
1. sæti 2. sæti 3. sæti 4. sæti

Frávik — talan við lið — sýnir raunstig liðsins umfram (+) eða undir (−) væntum stigum líkansins miðað við xG-frammistöðu liðsins. Áfr.-dálkurinn er litaður eftir líkum: dekkri reitur þýðir meiri líkur á að komast upp úr riðlinum.

04 Aðferð

Sókn × vörn

sóknar- og varnarvídd hvers liðs

Sóknar- og varnarstyrkur hvers liðs úr líkaninu — dreifiritið sýnir báðar víddirnar í einu.

Sókn × vörn

Hvert lið eftir sóknarstyrk (lárétt) og varnarstyrk (lóðrétt). Efra hægra horn = sterk í báðum, vinstra = sterk vörn, neðra hægra = sterk sókn. Smelltu á punkt eða leitaðu til að velja lið.

Styrkur liða

48 lið · styrkur með óvissubili

Taflan raðar liðum eftir styrk með 80% og 95% óvissubili. Heildarstyrkur er summa sóknar og varnar.

Mat á styrk liða
Aðferðafræði: Tvívítt Poisson-líkan (sama líkan og Metill notar fyrir íslenska boltann) metið á landsleikjum frá 2022. Styrkur hvers liðs þróast yfir tíma, svo nýlegir leikir vega þyngst og matið skerptist eftir því sem leið á mótið.
48 lið 12 riðlar Metill