Aðferðafræði.
Hvernig árstíðaleiðrétt verðbólga og spáin á /verdbolga eru reiknaðar og hvernig spáin hefur reynst.
Gögn
Byggt er á vísitölu neysluverðs frá Hagstofu Íslands. Líkanið notar breytingu vísitölunnar milli mánaða frá janúar 2000. Hagstofan endurskoðar ekki vísitöluna eftir á, svo að hver ný mæling bætist einfaldlega við. Hagstofan birtir mælingu hvers mánaðar í lok hans. Í sömu töflu er vísitala neysluverðs án húsnæðis. Sömu mælikvarðar eru sýndir fyrir hana.
Líkanið
Breytingu vísitölunnar í hverjum mánuði er skipt í þrjá þætti.
- Undirliggjandi taktur er slembiganga. Hann breytist lítillega frá mánuði til mánaðar og líkanið metur sjálft hve mikið. Almennt telur líkanið líklegra að takturinn breytist hægt en hratt.
- Árstíðaáhrif. Hver almanaksmánuður hefur eigin áhrif sem geta færst til milli ára. Innan hvers árs leggjast þau saman í núll, svo að árstíðaleiðréttingin breytir 12 mánaða verðbólgu lítið en dreifir hækkunum jafnar á mánuðina.
- Tilfallandi breytingar fylgja t-dreifingu. Hún leyfir stök stór stökk, til dæmis við skattbreytingar, án þess að þau skekki mat á árstíðinni eða taktinum.
Líkanið er metið með Stan (Hamiltonian Monte Carlo) og gefur 4.000 sýni úr eftirádreifingu. Hver tala á síðunni er miðgildi sýnanna og óvissubilið nær yfir 90% þeirra. Áður en gögn eru birt er gengið úr skugga um að matið hafi tekist: keðjurnar þurfa að ná saman og sýnin að vera nógu mörg og óháð. Standist matið ekki prófið er ekkert birt.
Árstíðaleiðrétt verðbólga
Árstíðaleiðrétt mánaðarbreyting er mæld breyting að frádregnum metnum árstíðaáhrifum mánaðarins. Breytingar síðustu 1, 3, 6 eða 12 mánaða eru lagðar saman og umreiknaðar á ársgrundvelli, svo að allar tölurnar séu sambærilegar við ársverðbólgu.
Tölurnar eru mæld verðbólga: tilfallandi breytingar eru enn í þeim. Þess vegna sveiflast eins mánaðar talan mikið og þriggja mánaða talan nokkuð. Óvissubilið endurspeglar aðeins óvissu um árstíðaáhrifin, því mælda breytingin er þekkt.
Undirliggjandi taktur er árleg verðbólga samkvæmt takti líkansins í síðasta mánuði, án tilfallandi breytinga. Óvissubil hans er breiðara, því takturinn í síðasta mánuði er metinn aðeins út frá liðnum mánuðum.
Línan á myndinni er mat dagsins í dag og byggir því á gögnum sem lágu ekki fyrir á hverjum tíma. Frá ágúst 2016 sýna punktar taktinn eins og hann var metinn í hverjum mánuði. Til og með september 2026 voru þau möt reiknuð eftir á, á gögnum til og með hverjum mánuði. Síðan eru þau skráð við hverja birtingu og aldrei endurskoðuð. Við matið í október 2026 munaði að jafnaði um 0,7 prósentustigum á matinu þá og nú. Mestu munaði í júlí 2022, þegar takturinn var metinn 12,9% en var í október 2026 metinn um 9%.
Þegar nýjar mælingar bætast við lærir líkanið meira um árstíðaáhrifin og mat á nýlegum mánuðum getur breyst. Mest breytist matið á allra síðustu mánuðum.
Án húsnæðis. Sama líkan er metið sérstaklega á vísitölu neysluverðs án húsnæðis, með eigin takti og eigin árstíðaáhrifum. Tölurnar eru því ekki reiknaðar sem mismunur tveggja raða. Árstíðasveiflan er meiri án húsnæðis, því húsnæðisliðurinn sveiflast lítið eftir árstíðum. Spáin og samanburðurinn við bankana eiga aðeins við vísitöluna í heild.
Framlag liða
Framlag hvers flokks er reiknað úr vísitölum og vægi flokkanna sem Hagstofan birtir eftir eðli og uppruna. Samanlagt er framlag flokkanna 12 mánaða breyting vísitölu neysluverðs. Munurinn stafar aðeins af námundun birtra vísitalna og er innan við 0,1 prósentustig í hverjum mánuði frá 2005. Þetta er bein sundurliðun mælingarinnar en ekki mat líkansins.
Til og með desember 2025 er byggt á eldri flokkun Hagstofunnar en á nýrri flokkun frá janúar 2026. Í nýju flokkuninni eru sumar vörur í blönduðum flokki, hvorki taldar innlendar né innfluttar. Hér teljast matur og drykkir úr þeim flokki til innlendra vara og aðrar vörur úr honum til innfluttra.
Spáin
Spáin fyrir næsta mánuð fæst úr sama líkani: takturinn heldur áfram sem slembiganga og við bætast árstíðaáhrif mánaðarins og tilfallandi breyting. Spáin fyrir 12 mánaða verðbólgu leggur spána við breytingar síðustu 11 mánaða.
Spáin er gerð um leið og Hagstofan birtir nýjustu mælingu og byggir aðeins á gögnum til og með þeim mánuði. Hún er skráð og ekki endurskoðuð eftir það. Þegar mælingin liggur fyrir birtist spáin og skekkja hennar á síðunni.
Samanburður við spár bankanna
Til að prófa spána var líkanið metið aftur fyrir hvern mánuð frá janúar 2023 til september 2026, í hvert sinn aðeins með gögnum fram að mánuðinum á undan, eins og spáin hefði verið gerð á sínum tíma. Spárnar voru bornar saman við birtar spár Íslandsbanka og Landsbankans.
Bankarnir birta tvenns konar spár. Lokaspár koma um viku fyrir birtingu, þegar verðkönnun Hagstofunnar stendur yfir eða er nýlokið og bankarnir vita um verðbreytingar mánaðarins. Fyrri spár eru gerðar um sama leyti og spá Metils, þegar síðasta mæling er birt. Spár Arion banka fundust ekki á opnum vef og eru því ekki með.
| Spá | Mánuðir | Meðalskekkja | Bjagi | Munur frá spá Metils (90% óvissubil) |
|---|---|---|---|---|
| Spá Metils | 45 | 0,25 %-stig | +0,01 %-stig | |
| Landsbankinn, lokaspá | 41 | 0,22 %-stig | −0,05 %-stig | −0,04 (−0,07 til −0,02) |
| Íslandsbanki, lokaspá | 45 | 0,23 %-stig | −0,05 %-stig | −0,02 (−0,05 til +0,02) |
| Landsbankinn, fyrri spá | 19 | 0,30 %-stig | −0,16 %-stig | +0,07 (−0,02 til +0,28) |
| Íslandsbanki, fyrri spá | 45 | 0,27 %-stig | −0,11 %-stig | +0,03 (−0,01 til +0,07) |
Meðalskekkja er meðaltal af tölugildi skekkjunnar í %-stigum mánaðarbreytingar. Bjagi er meðalskekkja með formerki: neikvæður bjagi þýðir að spáð var of lágt. Munurinn er reiknaður á þeim mánuðum sem báðar spár ná til. Neikvæð tala þýðir að spá bankans var nær mælingunni.
Lokaspár bankanna eru nákvæmari að meðaltali. Lokaspár Landsbankans voru nær mælingunni en spá Metils í 26 af 41 mánuði og lokaspár Íslandsbanka í 24 af 45 mánuðum. Bankarnir vita af verðbreytingum mánaðarins sem líkanið sér ekki.
90% óvissubil spár Metils náði utan um mælinguna í 43 af 45 mánuðum (96%). Í sams konar prófun á árunum 2016 til 2022 náði það utan um mælinguna í 74 af 76 mánuðum (97%), svo bilin hafa verið í breiðara lagi.
Ekki tókst að sækja gögnin. Reyndu að endurhlaða síðuna.
Takmarkanir
- Líkanið sér aðeins vísitöluna í heild. Það veit ekki af boðuðum skatta- eða gjaldskrárbreytingum, svo sem breytingum á gjöldum á eldsneyti í ársbyrjun 2026, fyrr en þær koma fram í mælingu.
- Árstíðaáhrif eru metin á vísitölunni í heild, ekki einstökum liðum. Árstíðamynstur sumra liða, til dæmis húsnæðis, er veikt og óvisst.
- Óvissubilin ná yfir óvissu innan líkansins, ekki yfir það hvort líkanið sjálft sé rétt.