Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Aðferðafræði · Leikskólar Gögn uppfærð 29. september 2026 metill.is / sveitarfélög / leikskólar / aðferðafræði
Aðferðafræði

Hvernig mælingin er unnin

Síðan birtir hlutfall barna með leikskólapláss eftir sveitarfélagi, aldri og ári. Hér útskýrum við hvaðan gögnin koma, hvernig hlutfallið er reiknað, og hvar mælingunni eru sett mörk.

Heimildir

Hagstofa Íslands
Tvær PX-API töflur
Sóttar beint úr Hagstofu

Teljari — fjöldi barna með leikskólapláss kemur úr SKO01000 (Börn og leikskólar í desember). Hagstofan birtir töflu árlega með talningu í desembermánuði fyrir hvern leikskóla landsins eftir aldri barnsins. Við leggjum saman alla leikskóla innan sveitarfélagsins.

Nefnari — stærð árgangsins kemur úr MAN02005 (Mannfjöldi eftir sveitarfélagi, aldri og kyni) — fjöldi íbúa með viðkomandi aldur í janúar.

Tímatafla nefnara

Janúar mánuði síðar

Leikskólatalan er gerð upp í desember og stærð árgangsins sótt í mannfjöldatölur janúarmánuði síðar, þegar börnin eru enn í sama aldursflokki og í talningunni. Janúartalan á undan myndi telja þau í röngum aldursflokki, því börnin eldast um ár á milli talninga.

Í gögnunum eru dæmi um að fleiri börn séu með pláss en eru í árganginum. Það gerist þegar sveitarfélagið býður börnum utan sveitarfélagsins pláss, eða þegar barnið er skráð annars staðar en foreldrarnir búa. Við sníðum hlutfallið efst af við 100%.

Sameiningar sveitarfélaga

Núverandi nöfn

Sveitarfélög sameinast reglulega. Mannfjöldatölur Hagstofunnar miðast öll árin við núverandi sveitarfélög, en í leikskólatölunum eru leikskólar skráðir undir sveitarfélaginu sem þeir tilheyrðu þá. Til að halda samfelldri tímaröð leggjum við gömlu einingarnar saman undir núverandi nafni. Fljótsdalshérað, Seyðisfjörður, Borgarfjarðarhreppur og Djúpavogshreppur eru til dæmis talin með Múlaþingi, Sandgerðisbær og Sveitarfélagið Garður með Suðurnesjabæ og Sveitarfélagið Álftanes með Garðabæ.

SKO01000 notar einnig óformleg styttri nöfn („Reykjavík“, „Kópavogur“, „Hafnarfjörður“) fyrir leikskóla, en formlegri nöfn í opinberum gögnum eru „Reykjavíkurborg“, „Kópavogsbær“, „Hafnarfjarðarkaupstaður“. Við notum formlega heitið alls staðar til að nöfn samrýmist öðrum gögnum á síðunni.

Það sem síðan svarar ekki

Mörk mælingarinnar

Biðlistar. Mælingin segir til um fjölda barna með pláss, ekki fjölda þeirra sem bíða eftir plássi. Tvö sveitarfélög með sama hlutfall geta haft mismunandi langa biðlista — fer eftir því hvenær á árinu þau útbúa pláss.

Vistunarstundir. Mælingin telur börn með pláss óháð vistunartíma. Sveitarfélögin bjóða mismunandi langan vistunartíma og misjafna gjaldskrá.

Hvort barnið er í einkareknum eða opinberum leikskóla. SKO01000 telur báða flokka saman.

Lítil sveitarfélög. Ár þar sem færri en 20 börn á aldrinum 1–5 ára búa í sveitarfélaginu eru ekki birt. Í minni sveitarfélögum eru einstakir árgangar oft færri en 20 börn. Slíkir árgangar gefa óstöðug hlutföll, því eitt eða tvö börn færa hlutfallið um 5–20 prósentustig. Þeir eru sýndir sem holir punktar í tímaröðunum en ekki teknir með í röðuninni. Síðan birtir þannig 54 sveitarfélög. Út falla fámennustu hrepparnir og hreppar sem reka engan leikskóla.

Frávik 2023. Talning ársins 2023 sýnir áberandi lægra hlutfall fyrir 1 árs börn í Kópavogi (−20 prósentustig), Hafnarfirði (−27), Mosfellsbæ (−22) og Garðabæ (−19). Eldri aldursárgangar urðu lítt fyrir áhrifum — hlutfallið fyrir 2–5 ára er á svipuðu róli og á undanförnum árum. Mynstrið bendir til þess að sveitarfélögin hafi forgangsraðað eldri börnum þegar pláss voru af skornum skammti. Rýming Grindavíkur (nóvember 2023) gæti hafa aukið álag á höfuðborgarsvæðið, en það skýrir ekki af hverju 1-árs hlutfallið eitt féll og 2–5 ára hélst óbreytt. Talnaröðin 2024 sýnir að mestu eðlilegt mynstur, þó að 1 árs hlutfallið hafi ekki að fullu náð sér.

Uppfærslur

Árleg

Hagstofan birtir desembertalningu vorið eftir (maí–júní). Síðan er uppfærð þegar nýjustu tölurnar liggja fyrir. Stærð árgangsins (MAN02005) er birt í lok hvers janúar; við sækjum nýjustu útgáfu þegar leikskólatalan kemur.

Opin gögn. Heimildir eru opnar töflur Hagstofu Íslands.