Íþróttaspár
Gögnin
Líkönin eru metin út frá úrslitum leikja: frá KSÍ í knattspyrnu, HSÍ í handbolta og KKÍ í körfubolta. Í knattspyrnu nýtir matið alla deildar- og bikarleiki liðanna síðan 2021, svo að lið úr öllum deildum fá mat á styrk.
Knattspyrna
Fyrir hvern fótboltaleik metum við fjölda marka sem bæði liðin skora með tvívíðri Poisson-dreifingu. Væntigildi marka ræðst af sóknar- og varnarstyrk liðanna, heimavallaráhrifum og tímabreytilegri leitni í meðalfjölda marka á landsvísu.
Í Bestu deild karla og kvenna er deildinni skipt í efri og neðri hluta þegar öll lið hafa mætt hvert öðru heima og að heiman, og liðin leika svo innbyrðis í sínum hluta. Spáin um lokastöðu nær yfir allt tímabilið, líka umferðirnar eftir skiptinguna.
Handbolti
Í handbolta eru mörkin mun fleiri en í knattspyrnu, svo að mörk heima- og útiliðs eru metin með tvívíðri Student-t-dreifingu í stað Poisson. Student-t-dreifingin hefur þykkari hala en normaldreifing og gerir því ráð fyrir stöku leikjum sem enda með óvenju miklum mun. Væntanleg mörk ráðast af sóknar- og varnarstyrk liðanna og heimavallaráhrifum, eins og í knattspyrnu.
Deildarspáin nær aðeins til deildarkeppninnar. Íslandsmeistari ræðst í úrslitakeppni sem líkanið spáir ekki fyrir um.
Körfubolti
Körfuboltalíkanið er af sama tagi og handboltalíkanið: tvívíð Student-t-dreifing á stigaskori heima- og útiliðs. Í körfubolta eru engin jafntefli, því jafn leikur er framlengdur þar til annað liðið vinnur. Spárnar sýna því aðeins sigurlíkur hvors liðs. Deildarspáin nær aðeins til deildarkeppninnar, eins og í handbolta.
Bikarkeppni
Mjólkurbikarinn er útsláttarkeppni. Bikarleikir sem enda með jafntefli eftir 90 mínútur fara í framlengingu og vítaspyrnukeppni. Líkanið tekur á því með því að draga úrslit úr sömu dreifingu þar til annað liðið vinnur, sem jafngildir líkum á sigri gefið að annað liðið vinni. KSÍ dregur í hverja umferð eftir að sú fyrri klárast, svo að líkanið tekur meðaltal yfir mögulega mótherja í hverri umferð. Úr þessu fást líkur á að hvert lið komist í hverja umferð og vinni bikarinn.
Styrkur liða
Hvert lið hefur sóknar- og varnarstyrk ásamt áhrifum heimavallar á þessa tvo stika. Sóknar- og varnarstyrkur breytist yfir tíma samkvæmt slembigöngu — þannig geta liðin batnað eða versnað milli leikja.
Styrkurinn er hlutfallslegur: hann segir hvernig liðin standa hvert gagnvart öðru, ekki hversu sterk deildin er í heild. Í töflunni er matið við upphaf tímabils því hliðrað svo að meðaltal liðanna sé hið sama og nú. Munurinn sýnir þá hvernig lið hafa breyst miðað við hin. Talan á eftir ± er hálf breidd 80% óvissubils.
Staðan og form
Í knattspyrnu sýnir staðan einnig xSkoruð, xFengin og xStig: væntigildi líkansins fyrir mörk skoruð, mörk fengin og stig í spiluðum leikjum, reiknuð fyrir hverja umferð út frá matinu áður en hún hófst. Δ er uppsafnaður munur á raunverulegum og væntum mörkum og Form sýnir frávik frá spáðum markamun í síðustu fimm leikjum. Stórt frávik getur bent til breytinga sem líkanið hefur ekki enn náð, en líkanið gerir ráð fyrir að hluti þess gangi til baka.
Eftirádreifing
Eftirádreifing stika líkansins er fengin með Hamiltonian Monte Carlo í Stan. Allar tölur á síðum ÍþróttaMetils byggja á þessari dreifingu — líkur á deildarsigri, spá um komandi leiki og óvissubil á styrk liða koma beint úr henni.