Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Aðferðafræði · Fylgisvakt Gögn uppfærð 29. september 2026 metill.is / fylgisvakt / aðferðafræði
Fylgisvakt / Aðferðafræði

Aðferðafræði fylgisvaktar

Líkanið

Fylgisvaktin byggir á stigskiptu bayesísku tímaraðalíkani, skrifuðu í Stan, sem metur fylgi hvers stjórnmálaflokks út frá niðurstöðum skoðanakannana.

Fylgi flokkanna þróast sem slembiganga milli kannana. Almennt telur líkanið líklegra að fylgi breytist hægar en hraðar, svo ein könnun sem sker sig úr hnikar matinu minna en nokkrar sem benda í sömu átt.

Líkanið metur einnig kerfisbundin frávik hvers könnunarfyrirtækis, þ.e. tilhneigingu þess til að mæla tiltekna flokka hærri eða lægri en önnur fyrirtæki, og leiðréttir fyrir þeim. Samanburður sögulegra kannana við úrslit kosninga segir líkaninu hve langt kannanir hafa áður vikið frá úrslitum.

Á milli kosninga byggir matið eingöngu á könnunum. Efnahagur og stjórnarseta hafa engin áhrif á það.

Gögn

Líkanið byggir á fylgiskönnunum sem birst hafa frá kosningunum 30. nóvember 2024 og úrslit kosninganna eru upphafspunktur tímaraðarinnar. Könnunarfyrirtæki í líkaninu eru Gallup og Maskína. Kannanirnar eru 44 talsins og sú nýjasta er frá 14. september 2026.

Óvissubil

Óvissubilin endurspegla bæði úrtaksóvissu kannana og óvissu um frávik könnunarfyrirtækja. 90% óvissubil þýðir að samkvæmt líkaninu eru 90% líkur á að raunverulegt fylgi liggi innan bilsins. Breiðara bil þýðir meiri óvissu.

Í töflunni „Nýjasta greining“ sýna tölurnar miðgildi og 90% óvissubil, en stikurnar sýna 50, 80, 90 og 95% óvissubil. Tímaröðin sýnir 50 og 80% óvissubil.

Breyting

Dálkurinn „Breyting“ sýnir hve mikið fylgi hvers flokks hefur breyst í prósentustigum frá næstu mælingu á undan (2. september 2026) til þeirrar nýjustu (14. september 2026), ásamt 90% óvissubili breytingarinnar.

Uppfærslur

Líkanið er keyrt aftur þegar nýjar kannanir birtast. Síðasta keyrsla var 29. september 2026.

Leiðréttingarstefna

Ef villa finnst í gögnum eða greiningu er hún leiðrétt eins fljótt og auðið er. Leiðréttingar eru merktar á viðkomandi síðu.