Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Íþróttir Gögn uppfærð 28. september 2026 metill.is / íþróttir
ÍþróttaMetill

Mjólkurbikar kvenna

Íþróttalíkön Metils notuð til að greina stöðuna og gefa spár um niðurstöður leikja og deilda

Þróttur R. er bikarmeistari 2026.

Bikarmeistari Þróttur R.
Næsta umferð — Keppninni er lokið
Lið í keppni —
Spá uppfærð 28. sep.
2026 · Uppfært 28. september 2026
01 Næstu leikir

Næstu leikir

Keppninni er lokið.

02 Bikarspá

Bikarslóðin

Úrslit keppninnar
Mat á styrk liða
Miðgildi ± hálft 80% óvissubil. Dekkra bilið sýnir 80%, það ljósara 95%.
Hleð gögnum…

Sókn × vörn

Eftirádreifing · n = 4.000

Sóknar- og varnarstyrkur hvers liðs úr líkaninu — lengra til hægri = sterkari sókn, ofar = sterkari vörn. Strikalínurnar marka miðgildi keppninnar. Valin lið eru merkt; smelltu á punkt eða leitaðu til að bæta liðum við eða fjarlægja.

03 Aðferð
Aðferðafræði: Tvívíð Poisson-dreifing með tímabreytilegum sóknar- og varnarstyrk. Sjá nánar á aðferðafræðisíðu.
Bikarkeppni: Mjólkurbikarinn er útsláttarkeppni — engin stigatafla, ekkert fall. Spár sýna líkur á einstökum leikjum og mat á styrk liðanna sem mætast í næstu umferð. Liðin í keppninni koma úr öllum deildum knattspyrnunnar, og mat á styrk nýtir alla leiki liðsins (deild og bikar) síðan 2021.
Bikarslóðin: Útsláttartré keppninnar frá 16-liða úrslitum til úrslitaleiks. Spilaðar umferðir sýna úrslit leikja; komandi umferðir sýna líkur líkansins á því hvaða lið mætast og hver kemst áfram, og smella má á lið til að gera ráð fyrir úrslitum. Bikarleikir sem enda í jafntefli eftir 90 mínútur fara í framlengingu og vítaspyrnukeppni — líkanið meðhöndlar það með því að halda áfram að draga útkomur úr sömu Poisson-dreifingu þar til annað liðið vinnur (jafngildir skilyrtum líkum á sigri liðs gefið að einhver vinni). Þar sem KSÍ dregur ekki út útsláttarbrautina fyrirfram — pörun næstu umferðar er dregin eftir að núverandi umferð klárast — eru pörunarmöguleikar líka óvissir og líkanið tekur meðaltal yfir þá í hverri umferð.
Markamismunadreifing: Eftirádreifing líkansins á mun heima- og útimarka í hverjum leik í Næstu leikir-spjaldinu. Jökulbláa súlan stendur ávallt fyrir jafntefli (mismun = 0) og er á sama stað í miðju á öllum leikjum, sem auðveldar samanburð á jafnteflislíkum milli leikja. Lóðrétta línan markar vænt gildi dreifingarinnar; hún hliðrast til vinstri þegar heimaliðið er sigurstranglegra og til hægri annars. Athugið að í bikarleikjum gildir framlenging og vítaspyrnukeppni eftir 90 mínútur þegar staðan er jöfn — líkanið spáir aðeins stöðu eftir 90 mínútur.