Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Útgáfa 04 · Sumar 2026 Gögn uppfærð 2026-06-27 metill.is / íþróttir
Íþróttagreining

ÍþróttaMetill

Íþróttalíkön Metils notuð til að greina stöðuna og gefa spár um niðurstöður leikja og deilda

Af 4 liðum í keppninni á Víkingur R. mestar líkur á titlinum.

Líklegasti meistari Víkingur R. 65% líkur
Næsta umferð Undanúrslit 1 leikir
Lið í keppni 4 í næstu umferð
Spá uppfærð 2026-06-27
HM 2026 er hafið. Sigurspá Metils — riðlaspá, sigurlíkur og útsláttartré. Skoða →
01 Næstu leikir

Næstu leikir

1 leikir · 28. júní
Súlur: líkur á heima · jafntefli · gestum Markamismunur: jafntefli í miðju · lína = vænt gildi xG = vænt mörk
02 Bikarspá

Bikarslóðin

Smelltu á lið til að gera ráð fyrir úrslitum í komandi umferðum
Mat á styrk liða

Sókn × vörn

Posterior · n = 4.000

Sóknar- og varnarstyrkur hvers liðs úr líkaninu — lengra til hægri = sterkari sókn, ofar = sterkari vörn. Strikalínurnar marka miðgildi keppninnar. Valin lið eru merkt; smelltu á punkt eða leitaðu til að bæta liðum við eða fjarlægja.

03 Aðferð
Aðferðafræði: Tvívíð Poisson-dreifing með tímabreytilegum sóknar- og varnarstyrk. Sjá nánar á aðferðafræðisíðu.
Bikarkeppni: Mjólkurbikarinn er útsláttarkeppni — ekkert stigatafl, ekkert fall. Spár sýna líkur á einstökum leikjum og styrkleikamat liðanna sem mætast í næstu umferð. Liðin í keppninni koma úr öllum deildum knattspyrnunnar, og mat á styrk nýtir alla leiki liðsins (deild og bikar) síðan 2021.
Bikarslóðin: Útsláttartré keppninnar frá 16-liða úrslitum til úrslitaleiks. Spilaðar umferðir sýna úrslit leikja; komandi umferðir sýna líkur líkansins á því hvaða lið mætast og hver kemst áfram, og smella má á lið til að gera ráð fyrir úrslitum. Bikarleikir sem enda í jafntefli eftir 90 mínútur fara í framlengingu og vítaspyrnukeppni — líkanið meðhöndlar það með því að halda áfram að draga útkomur úr sömu Poisson-dreifingu þar til annað liðið vinnur (jafngildir skilyrtum líkum á sigri liðs gefið að einhver vinni). Þar sem KSÍ dregur ekki út útsláttarbrautina fyrirfram — pörun næstu umferðar er dregin eftir að núverandi umferð klárast — eru pörunarmöguleikar líka óvissir og líkanið meðallar yfir þá í hverri umferð.
Markamismunadreifing: Eftirádreifing líkansins á mun heima- og útimarka í hverjum leik í Næstu leikir-spjaldinu. Jökulbláa súlan stendur ávallt fyrir jafntefli (mismun = 0) og er á sama stað í miðju á öllum leikjum, sem auðveldar samanburð á jafnteflislíkum milli leikja. Lóðrétta línan markar vænt gildi dreifingarinnar; hún hliðrast til vinstri þegar heimaliðið er sigurstrangra og til hægri annars. Athugið að í bikarleikjum gildir framlenging og vítaspyrnukeppni eftir 90 mínútur þegar staðan er jöfn — líkanið spáir aðeins stöðu eftir 90 mínútur.