Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Útgáfa 04 · Sumar 2026 Gögn uppfærð 2026-06-22 metill.is / hm 2026
Heimsmeistaramótið 2026 · Bandaríkin · Kanada · Mexíkó

HM 2026

Íþróttalíkan Metils metur sóknar- og varnarstyrk hvers landsliðs og spáir fyrir um úrslit mótsins.

Líklegasti meistari Argentína 23% líkur
Staða móts 40 af 72 riðlaleikir spilaðir
Umfang 48 lið í 12 riðlum
Spá uppfærð 22. júní 2026 3.000 hermanir
01 Sigurspáin

Hverjir vinna mótið?

líkur á titli

Líkur hvers liðs á að lyfta bikarnum.

Eftir 40 af 72 riðlaleikjum er Argentína sigurstranglegust til að vinna mótið (23% líkur).

02 Riðlakeppnin

Næstu leikir

12 næstu riðlaleikir

Spá um úrslit komandi riðlaleikja: líkur á heimasigri, jafntefli og útisigri, vænt mörk (xG) og dreifing spáðs markamismunar.

Súlur: líkur á heima · jafntefli · gestum Markamismunur: jafntefli í miðju · lína = vænt gildi xG = vænt mörk

Riðlakeppnin

12 riðlar · staðan og spá

Veldu riðil. Vinstri hluti töflunnar sýnir stöðuna eins og hún er — leikir, stig, mörk og markamunur — og hægri hlutinn spá líkansins: spáð stig og markamunur, líkur á hverju lokasæti (Lokastaða) og líkur á að komast upp úr riðlinum (Áfr.).

Hleð gögnum…
1. sæti 2. sæti 3. sæti 4. sæti

Frávik — talan við lið — sýnir raunstig liðsins umfram (+) eða undir (−) væntum stigum líkansins miðað við xG-frammistöðu liðsins. Áfr.-dálkurinn er litaður eftir líkum: dekkri reitur þýðir meiri líkur á að komast upp úr riðlinum.

03 Útsláttarkeppnin

Útsláttarkeppnin

32-liða úrslit → úrslitaleikur

Útsláttartréð frá 32-liða úrslitum að úrslitaleik. Hver leikur sýnir líklega keppendur — efstu liðin sem berast úr hvorri átt, þar sem ljósa stikan er líkur á að komast þangað — og neðst, með gulu, líklegasta sigurvegarann og líkur hans á að vinna leikinn. Þú getur gefið þér tvenns konar forsendur: smelltu á lið í sæti til að gera ráð fyrir að það komist þangað (í 32-liða úrslitum: upp úr riðlinum), eða á gulu röðina til að gera ráð fyrir að það vinni leikinn — þá uppfærist allt tréð niður á við. Uppsafnaðar líkur á að ná hverri umferð eru í Heildaryfirlitinu hér að neðan.

Smelltu á lið til að spá fram á við — eða á gulu röðina til að festa sigur.

1A = sigurvegari A-riðils 2B = annað sæti B-riðils „3. sæti“ = eitt af bestu liðum í þriðja sæti Gula röðin = líklegasti sigurvegari leiksins

Ferðalag liðs

Veldu lið og fylgdu líklegustu leið þess gegnum útsláttarkeppnina — hvar það endar í riðlinum, hverja það mætir og líkur á að ná hverri umferð. Stilltu á 1. eða 2. sæti til að sjá hvernig lokastaðan í riðlinum breytir leiðinni.

Riðlakeppni
Kemst áfram
Útsláttarleið — líkur á að ná umferð og líklegasti mótherji

Tölurnar eru líkur á að ná hverri umferð. Líklegasti mótherji er reiknaður úr líkaninu; fyrir valið sæti er liðið fest í þá rás og leiðin spáð fram. Lið getur líka komist áfram sem eitt af bestu liðum í 3. sæti — sú leið er talin með í „Eins og spáin“ en er ekki valin sérstaklega, því sætið í útsláttartrénu er óvíst. Uppsafnaðar líkur allra liða eru í Heildaryfirlitinu hér að neðan.

Einvígi

Veldu tvö lið og sjáðu líkurnar á að annað komist lengra en hitt í mótinu — og á að þau mætist í útsláttarkeppninni.

„Ég skal lofa þér því ef að Portúgal fer lengra en Argentína, þá skal ég láta þig hafa númerið hans“— Eiður Smári Guðjohnsen við Albert Brynjar Ingason um símanúmerið hans Messi

Líkurnar koma úr sömu samhermun og spáin í heild — fyrir hvert af 1.000 mögulegum mótum er fylgst með hve langt hvort lið kemst og hvort þau mætast. „Komist lengra“ þýðir strangt til tekið lengra: jafntefli (bæði slegin út í sömu umferð) telst ekki með. Mætist liðin er það talið frá 16-liða úrslitum og áfram.

Heildaryfirlit

öll 48 lið · líkur á að ná hverri umferð

Líkur allra 48 liða á að komast upp úr riðlinum og áfram í gegnum hverja umferð (uppsafnað). Dekkri reitur = hærri líkur; prósenta sýnd þegar hún nær 10%.

04 Aðferð & frammistaða

Sókn × vörn

sóknar- og varnarvídd hvers liðs

Sóknar- og varnarstyrkur hvers liðs úr líkaninu — dreifiritið sýnir báðar víddirnar í einu.

Sókn × vörn

Hvert lið eftir sóknarstyrk (lárétt) og varnarstyrk (lóðrétt). Efra hægra horn = sterk í báðum, vinstra = sterk vörn, neðra hægra = sterk sókn. Smelltu á punkt eða leitaðu til að velja lið.

Styrkur liða

48 lið · styrkur með óvissubili

Taflan raðar liðum eftir styrk með 80% og 95% óvissubili. Heildarstyrkur er summa sóknar og varnar.

Mat á styrk liða

Hvernig gekk spáin?

40 leikir · spá vs úrslit

Hér mælum við hvort spáin standist: hverju líkanið spáði fyrir leik og hvað gerðist. Fyrst — væntur fjöldi úrslita (summa líkinda) borinn saman við raunfjöldann.

Kvörðun spánna

Öll líkindi sem líkanið gaf (heima · jafntefli · úti) flokkuð saman: spáð líkur (lárétt) á móti raunverulegri tíðni (lóðrétt). Skyggða bandið sýnir hvar punktur gæti lent fyrir tilviljun eina. Þegar Metill segir 70%, rætist það í um 70% tilfella.

Spáð um markatölur

40 leikir · spá vs úrslit

Spáð líkindadreifing markatalna borin saman við raunveruleg úrslit: hver reitur sýnir hversu líklega líkanið taldi hverja útkomu (dekkri = líklegri) og rauða strikið er það sem gerðist. Lendi rauða strikið þar sem reiturinn er dökkur var spáin góð.

spáð líkindadreifing raunveruleg úrslit
Aðferðafræði: Tvíbreytt Poisson-líkan (sama líkan og Metill notar fyrir íslenska boltann) metið á landsleiki frá 2022. Styrkur hvers liðs þróast yfir tíma, svo nýlegir leikir vega þyngst og matið skerpist eftir því sem á mótið líður. Spáin uppfærist daglega um morguninn.
48 lið 12 riðlar Bayesísk óvissa Metill