Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Útgáfa — · Vor 2026 Gögn uppfærð — metill.is / sveitarfélög / húsnæði / aðferðafræði
Aðferðafræði · Húsnæði

Aðferðafræði.

Hvaðan koma tölurnar á /sveitarfelog/husnaedi, hvað er innifalið og hvað er ekki.

Húsnæðisstofn

Fjöldi íbúða er talinn úr fasteignaskrá HMS. Íbúðir á matsstigi 7 eða 8 teljast fullbúnar; aðrar eru taldar ófullbúnar og falla ekki hér með. Tölur eru áramótastöður (árslok hvers árs) nema fyrir núverandi ár, sem er uppfært mánaðarlega.

Fullorðnir íbúar

Mannfjöldi 18 ára og eldri úr Hagstofu Íslands, MAN02005. Eldri sveitarfélög sem hafa sameinast eru lögð saman undir núverandi afmörkun (sjá sameininganlista í scripts/build_husnaedi.py).

Þróunarmæling

Báðir kvarðar eru endurstilltir á 100 í árslok 2005. Lína ofar þýðir að sá þáttur vex hraðar. Mismunur á milli línanna í lóðréttri vegalengd er samanburðarhæfur milli sveitarfélaga því kvarðinn er sameiginlegur.

Hvar stendur þitt sveitarfélag?

Punktarit sýnir hlutfallslega aukningu íbúa og íbúða 2005–2026. Punktur yfir 45°-línunni: fasteignafjöldi hefur vaxið hraðar en fullorðnir. Undir línunni: öfugt. Stærð punkts ræðst af íbúafjölda í dag.

Fullorðnir á hverja íbúð

Hlutfall fullorðinna (18+) á hverja íbúð. Hærri lína = meiri þéttsetning.

Það sem er ekki á síðunni

Heimildir