Aðferðafræði — fjármál sveitarfélaga
Gögn
Ársreikningar sveitarfélaga koma frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga (Net_Ársreikningar_Pivot.xlsx) og ná yfir tekjur, gjöld, skuldir og rekstrarniðurstöðu. Mannfjöldi og vísitala neysluverðs eru frá Hagstofu Íslands (MAN02005, VIS01000) og notuð til að reikna mælikvarða á íbúa og á föstu verðlagi. Þegar einstök sveitarfélög birta ársreikninga sína á undan árlegri samantekt Sambandsins eru þeir teknir með í bráðabirgðamati þangað til formleg samantekt liggur fyrir.
Framsetning
Þróun sýnir tímaraðir valinna mælikvarða fyrir valin sveitarfélög. Dreifing sýnir samanburð milli sveitarfélaga á tilteknu ári. Viðmið sýnir hvernig hvert sveitarfélag stendur gagnvart þeim þremur mælikvörðum sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga fylgist með (reglugerð 502/2012) ásamt jafnvægisreglu sveitarstjórnarlaga (§64). Þjónusta byggir á Árbókum Sambands íslenskra sveitarfélaga og pivot-útdrætti úr bókhaldskerfi Sambandsins; nánari lýsing fyrir neðan.
Þjónustugögn
Þjónustusíðan byggir á tveimur gagnasöfnum sem ekki eru í ársreikningasamantektinni:
- Stöðugildi og skólar (Árbækur Sambands 2018–2025) — fjöldi stöðugilda hjá hverju sveitarfélagi 1. apríl ár hvert (eitt ár vantar þó: Árbók 2024 sleppti þessari töflu), fjöldi nemenda, kennara með kennsluréttindi, og hlutfall fagmenntaðra. Hver Árbók lýsir liðnu skólaári þannig að t.d. Árbók 2025 nær til skólaársins 2024. Leikskólatöflur birtast aðeins í Árbókum 2018–2023. Stöðugildi eru deild með íbúafjölda á 1. janúar viðkomandi árs eftir aldurshópi (0–5 ára fyrir leikskóla, 6–18 ára fyrir grunnskóla).
- Launakostnaður eftir málaflokki og deild (Sambandið, 2002–2023) — sundurliðun launakostnaðar úr bókhaldskerfi sveitarfélaganna eftir deild (Grunnskólar, Leikskólar og dagvistun, Þjónusta við fatlaða, og rúmlega 40 aðrar). Aðeins tegundin „Laun og launatengd gjöld“ er nýtt — almennur rekstrarkostnaður og annað fellur undan. Allar krónutölur eru færðar á fast verðlag ársins 2023 með vísitölu neysluverðs Hagstofu (VIS01000) og deilt með íbúafjölda. Áberandi þrep í launakostnaði þjónustu við fatlaða árið 2011 stafar af því að málaflokkurinn færðist frá ríkinu til sveitarfélaganna með lögum nr. 152/2010.
Skipulagsbreytingar (sameiningar sveitarfélaga) eru lagaðar í gegnum allan tímaramman, þannig að sögulegar færslur úr eldri einingum bætast við í þá nýju (t.d. Vesturbyggð gleypir Tálknafjarðarhrepp). Þetta gerir samanburð yfir tíma einfaldan.
Uppfærslur
Gögn uppfærast árlega þegar Samband íslenskra sveitarfélaga birtir samantekt ársreikninga, og þegar einstök sveitarfélög birta sína ársreikninga á vorin.
Leiðréttingarstefna
Ef villa finnst í gögnum eða framsetningu er hún leiðrétt eins fljótt og auðið er. Leiðréttingar eru merktar á viðkomandi síðu.