Metill. Notum gögn til að upplýsa, ekki sannfæra
Útgáfa — · Vor 2026 Gögn uppfærð — metill.is
Aðferðafræði

Íþróttaspár

Í vinnslu: Nánari umfjöllun um aðferðafræði líkansins er í undirbúningi. Bráðabirgðatexti að neðan lýsir uppbyggingu hennar í megindráttum.

Líkanið

Fyrir hvern fótboltaleik metum við fjölda marka sem bæði liðin skora með tvívíðri Poisson-dreifingu. Væntigildi marka ræðst af sóknar- og varnarstyrk liðanna, heimavallaráhrifum og tímabreytilegri leitni í meðalfjölda marka á landsvísu.

Styrkur liða

Hvert lið hefur fjóra stuðla: sóknar- og varnarstyrk ásamt áhrifum heimavallar á þessa tvo stika. Sóknar- og varnarstyrkur breytist yfir tíma samkvæmt slembigöngu — þannig geta liðin batnað eða versnað milli leikja.

Eftirádreifing

Eftirádreifing stika líkansins er fengin með Hamiltonian Monte Carlo í Stan. Allar tölur á síðum ÍþróttaMetils byggja á þessari dreifingu — líkur á deildarsigri, spá um komandi leiki og óvissubil á styrk liða koma beint úr henni.