| Fjöldatölur eftir rekstrarformum | |||||
| Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu | |||||
| Dagsetning |
Fjöldi starfandi
|
Hlutfall (%)
|
|||
|---|---|---|---|---|---|
| Nýjast | Undanfarið ár | Nýjast | Undanfarið ár | ||
| Opinbert starfsfólk | |||||
| B2, C2 og D4: opinber fyrirtæki | 1 ágú. 2025 | 4.440 | 1,9% | ||
| K1: ríkisstofnun | 1 ágú. 2025 | 24.348 | 10,4% | ||
| K2: stofnun sveitarfélags | 1 ágú. 2025 | 35.729 | 15,3% | ||
| K: aðrar opinberar stofnanir | 1 ágú. 2025 | 1.326 | 0,6% | ||
| Samtals | 1 ágú. 2025 | 65.843 | 28,2% | ||
| Almennur vinnumarkaður | |||||
| AX og E: einkahlutafélög | 1 ágú. 2025 | 118.720 | 50,8% | ||
| B: einkarekin sameignarfélög | 1 ágú. 2025 | 2.132 | 0,9% | ||
| C: einkarekin samlagsfélög | 1 ágú. 2025 | 2.635 | 1,1% | ||
| D & F: einkarekin hluta- og samlagshlutafélög | 1 ágú. 2025 | 24.543 | 10,5% | ||
| G: samvinnufélög | 1 ágú. 2025 | 942 | 0,4% | ||
| H: sjálfseignarstofnanir | 1 ágú. 2025 | 3.156 | 1,3% | ||
| L & M: spari- og lífeyrissjóðir | 1 ágú. 2025 | 393 | 0,2% | ||
| N & P: félagasamtök | 1 ágú. 2025 | 7.224 | 3,1% | ||
| R & Z: erlend félög | 1 ágú. 2025 | 184 | 0,1% | ||
| Rekstur á eigin kennitölu | 1 ágú. 2025 | 8.024 | 3,4% | ||
| Samtals | 1 ágú. 2025 | 167.953 | 71,8% | ||
| Heildarfjöldi | — | 233.796 | — | 100,0% | — |
| Heimild: Gögn Hagstofu um fjölda starfandi samkvæmt skrám | |||||
Gögnin
Lýsing
Gagnasafnið á bak við þessa skýrslu er gagnasafn Hagstofu:
Þar er starfandi einstaklingum skipt upp meðal annars eftir rekstrarformum. Hér eru eftirfarandi rekstrarform talin ná utan um opinbert vinnuafl:
- B2, C2, D4: Opinber fyrirtæki
- K: Aðrar opinberar stofnanir
- K1: Ríkisstofnun
- K2: Stofnun sveitarfélags
Önnur rekstrarform eru talin sem hluti af almennum vinnumarkaði. Þau eru:
- AX og E: Einkahlutafélög
- B: Einkarekin sameignarfélög
- C: Einkarekin samlagsfélög
- D & F: Einkarekin hluta- og samlagshlutafélög
- G: Samvinnufélög
- H: Sjálfseignarstofnanir
- L & M: Spari- og lífeyrissjóðir
- N & P: Félagasamtök
- R & Z: Erlend félög
- Rekstur á eigin kennitölu
Samantekt
Fjöldi starfsfólks eftir vinnumarkaði
Árstíðaleiðrétt hlutfall opinbers starfsfólks
Við getum hugsað að þetta séu tvö ferli:
- Langtímaferli sem breytist án mjög ákveðins mynsturs
- Árstíðabundnar sveiflur sem eru að mestu leyti svipaðar frá ári til árs
Notum GAM (Generalized Additive Models) til að meta bæði ferlin saman. Splæsibrúunin (e. splines) metur ferlið í tveimur hlutum, línulegum og ólínulegum, og notar stika til að toga ólínulega hlutann í átt að línulegu ferli.
Þar sem hæga þróunin getur verið að breytast mishratt á mismunandi árabilum notum við aðlögunarsplæsibrúun (e. adaptive smoother) þar sem ólínulegi stikinn fær að breytast með tíma. Í kóðanum er þetta táknað með
s(timi, bs = "ad")Árstíðarferlið hefur þær skorður að frávikið í upphafi og byrjun ársins á að stefna í sömu tölu, þ.e. \(\text{31. desember} \approx \text{1. janúar}\). Pakkinn
mgcvbýður upp á slíka hringrásarsplæsara (e. cyclic smooths) [alveg í ruglinu með íslenskuna núna]. Í kóðanum er þetta táknað meðs(manudur, bs = "cc")
Þegar við erum komin með mat á þessi tvö ferli er lítið mál að heilda yfir árstíðarbundnu sveiflurnar. Við vigtum árstíðarbundna matið eftir nákvæmni matsins í hverjum mánuði (einum deilt með staðalvillu matsins) og reiknum svo meðaltal eftir því.
Allt í allt metum við þá líkanið svona (einfölduð útgáfa af kóða):
gam(Opinbert ~ s(manudur, bs = "cc") + s(timi, bs = "ad"), offset = log(Heild), family = nb())
Fjöldi opinbers starfsfólks er jákvæð fjöldatala svo fyrsta ágískunin er alltaf neikvæða tvíkostadreifingin. Við metum líkanið á lograkvarða, bæði því það er náttúrulega matið fyrir dreifinguna, en líka því við búumst við því að útkoman breytist hlutfallslega milli ára.
Hér fyrir neðan sjáum við svo matið á árstíðaráhrifum:
Hlutall (p) opinbers starfsfólks (O) af heildarfjölda starfsfólks (H) má skrifa
\[ p = \frac{O}{H}, \]
Þar sem \(H\) inniheldur líka starfsfólk á almennum vinnumarkaði (A), s.s. \(H = O + A\).
Skoðum hlutfallið á tveimur mismunandi tímapunktum, \(p_1\) og \(p_2\).
\[ \frac{p_2}{p_1} = \frac{O_2/H_2}{O_1/H_1} = \frac{O_2/O_1}{H_2/H_1}. \]
Ef \(p_2 > p_1\) og \(p_1 \neq 0\) gildir að \(p_2/p_1 > 1\) og því
\[ \begin{aligned} \frac{O_2/O_1}{H_2/H_1} &> 1 \\ \rightarrow \frac{O_2}{O_1} &> \frac{H_2}{H_1}, \end{aligned} \]
þ.e. fjöldi opinbers starfsfólks hefur vaxið hlutfallslega hraðar en fjöldi starfsfólks alls.
Þetta er kannski augljóst, en það er gott að hafa þetta í huga þegar hlutfallið hækkar og athuga hvort það sé vegna mikilla opinberra ráðninga eða fækkunar starfa á almennum vinnumarkaði.
Hér nota ég GAM til að smootha gögnin og nota svo árstíðaleiðrétt smooth gögn til að reikna stöðugar mánaðarlegar breytingar og teiknum þær svo.



